Meðan fæturnir bera mig er verkefni sem er helgað öllum börnum sem hafa greinst með krabbamein á Íslandi. Hlaupararnir vilja samt sem áður tileinka einu barni hvern dag sem hlaupið er. Þetta eru börn sem hafa snert hlauparana á einn eða annan hátt.
21.05.2011
2. júní
Mirra Wolfram greindist með bráðaeitilfrumuhvítblæði í júní 2010 þá nýorðin 1 árs. Hún hefur verið í strangri lyfjameðferð síðan, yfirleitt hefur gengið vel en sumar vikur eru þó erfiðari en aðrar. Í sumarlok lýkur þessari ströngu meðferð og við tekur auðveldari töflumeðferð til ársloka 2012. Mirra hefur einstaka skapgerð, mikinn skapstyrk og geislandi bros sem hefur brætt alla sem að henni koma í meðferðinni.
20.05.2011
3. júní
Gunnar Tómasson greindist með hvítblæði tveimur vikum fyrir þriggja ára afmælið sitt. Meðferðin gekk að mestu vel og lauk þann 16. mars síðastliðinn. Hann er hress og sprækur strákur sem hlakkar til að byrja í skóla í haust.
20.05.2011
4. júní
Lea Karen Friðbjörnsdóttir greindist með heilaæxli við sjóntaugar 5 mánaða gömul. Vegna æxlis og skurðaðgerðar hefur Lea Karen misst sjónina og er blind. Í dag er Lea Karen 2 ára og hefur gengið í gegnum rúmlega 80 vikna lyfjameðferð þar sem hún hefur sýnt af sér gríðarlega hörku og mikinn dugnað. Þrátt fyrir mótbyr er Lea Karen ákveðin stúlka, ofsalega glaðlynd og þykir fátt betra en að knúsa stóra bróður sinn.
20.05.2011
5. júní
Georg Dravis var hraustur, glaðlyndur og orkumikill þriggja ára strákur þegar
hann veiktist og greindist með bráðahvítblæði í desember 2009. Við tók löng
og erfið meðferð. En Georg Dravis er baráttujaxl sem lætur ekkert stoppa sig
og kippir sér ekkert upp við kúlur, hnérispur eða hvítblæði. Hann heldur alltaf ótrauður áfram.
20.05.2011
6. júní
Rósalind Óskarsdóttir greindist með bráðahvítblæði sumarið 2009 þegar hún var ný orðin fjögurra ára. Hún er búin að vera í meðferð í tvö ár og klárar meðferðina eftir sex mánuði. Rósalind hefur verið rosalega dugleg í meðferðinni og tekist á við veikindin af miklum dugnaði. Rósalind hefur fundist erfiðast að venjast því að vera stungin en á móti koma góðar minningar af leikstofunni sem er á spítalanum og hafa þær vegið upp allt það erfiða sem hún hefur gengið í gegnum um.
20.05.2011
7. júní
Frank greindist í mars 2006 með bráðahvítblæði og litningargalla. Hann greindist þrisvar sinnum og hefur hann aldrei veigrað sér við lyfjameðferðirnar eða annað sem hann hefur þurfti að gangast undir og er það stórkostlegur styrkur. Hann þurfti að fara í tvenn mergskipti til að ná bata. Frank er fyrsti Íslendingurinn sem fær merg frá móður sinni með nýrri aðferð (haplotransplant). Styrkur Franks sést best í því hvað hann hefur hjálpað mörgum öðrum við svipaðar aðstæður með umhyggju og ljúfri nærveru.
20.05.2011
8. júní
Björn Elís, tveggja ára, greindist 18. október 2010 með Wilms æxli í nýra. Hann var mikið veikur fyrstu mánuðina en eftir að nýrað var tekið hjá honum fór allt að fara upp á við. Hann er í stífri lyfjameðferð fram í miðjan júní. Litli kallinn er búinn að standa sig eins og hetja í öllu þessu ferli þó að meðferðin hafi oft verið honum erfið.
20.05.2011
9. júní
Þuríður Arna greindist með heilaæxli í október 2004 og var með mjög slæma flogaveiki vegna þess. Á þeim rúmlega sex árum síðan Þuríður greindist hefur hún farið í skurðaðgerð, geislameðferð og lyfjameðferð en ekkert af þessu hefur verið endanleg lækning fyrir hana. Í maí 2010 kom í ljós að æxlið hafði stækkað og var hún þá send í svokallaða gammageisla í Svíþjóð. Frá þeirri meðferð hefur hún glímt við slæmar aukaverkanir sem hafa m.a. valdið tímabundinni lömun. Þessi misserin bíðum við og vonum að árangur fari að sjást af síðustu meðferð en Þuríður Arna er einmitt í rannsóknum 9. júní.
20.05.2011
10. júní
Ingibjörg Aþena Magnúsdóttir greindist með hvítblæði í desember 2009. Eftir meðferð hérna heima fór hún í beinmergsskipti í Svíþjóð. Einhver yndisleg ókunnug manneskja gaf henni beinmerginn sinn. Hún er á góðum batavegi og eins og hún segir sjálf var þessi tími ótrúlega fljótur að líða.
20.05.2011
11. júní
Sigurður Andrés Sverrisson greindist í mars 2010 með bráðahvítblæði í eitlum. Hann gekkst undir 6 mánaða erfiða lyfjagjöf og stóð sig eins og sannkölluð hetja. Húmorinn var aldrei langt frá og hann kvartaði aldrei, sama hversu brött erfiðleikabrekkan var.
20.05.2011
12. júní
Sævar Darri er 9 ára og greindist með sjaldgæfa tegund hvítblæðis haustið 2010. Hann býr á Akureyri og flutti því fjölskyldan búferlum til Reykjavíkur undireins á meðan hann gekkst undir harða lyfjameðferð í hálft ár. Sævar er nú í endurhæfingu og fer í eftirlit á fjögurra vikna fresti til Reykjavíkur. Sævar Darri hefur sýnt einstakt æðruleysi og baráttuvilja í veikindum sínum. Í dag þykja okkur mikil forréttindi að geta verið heima og fögnum hverju skrefi fram á við.
20.05.2011
13. júní
Ólafur Þór Helgason var aðeins 21 mánaðar gamall þegar hann greindist með bráðamergfrumuhvítblæði. Hann gekk í gegnum mjög harða lyfjameðferð sem tók níu mánuði en hann stóð sig eins og hetja. Í dag, tæpum tveimur árum frá meðferðarlokum, er hann hress og kátur strákur og ekki á honum að sjá að hann hafi gengið í gegnum þessar raunir.
20.05.2011
14. júní
Ragnhildur Guðmundsdóttir greindist með hvítblæði í október 2009, þá 14 ára gömul. Baráttan var henni ansi erfið og nokkuð oft tvísýn. Í dag er hún hraust og vart hægt að merkja hversu veik hún var.
20.05.2011
15. júní
Emil Ágúst var tveggja og hálfs árs þegar hann greindist með bráðahvítblæði. Hann byrjaði í lyfjameðferð í byrjun janúar 2010. Fyrstu 7-8 mánuðina í meðferðinni var hann mjög veikur vegna lyfjanna og fékk hann flestu aukaverkanir sem hægt var að fá. Emil sýndi fljótt ótrúlega aðlögunarhæfni og barðist eins og sannur víkingur og gerir enn og er gott útlit að Emil nái fullum bata.
20.05.2011
16. júní
Gunnar Hrafn Sveinsson var rúmlega þriggja ára þegar hann greindist með bráðahvítblæði í janúar 2010. Meðferð hans var ansi ströng í eitt ár en er hann nú kominn á beinu brautina. Gunnar Hrafn hefur tekist á við veikindi sín af einstöku æðruleysi og sýnt óvenju mikinn styrk. Í dag er Gunnar Hrafn kátur leikskólastrákur sem byggir upp krafta sína og tekur framförum dag frá degi.