Nú eru hlauparar búnir að jafna sig nokkuð vel eftir átökin, sumir búnir að jafna sig betur en aðrir og þegar farnir að keppa í hlaupum (Mamman ekki í þeim hópi). Hásinin blessunin er enn svolítið fyrirferðamikil en leyfir Mömmunni nú að ganga átakalaust niður tröppur og gönguferðir og hjólatúrar eru nú með öllu sársaukalausir. Fótbrotni Krumminn hleypur um allt á gifsinu sínu þegar hann er ekki að hræða líftóruna úr foreldrum sínum í hjólastólarallýi. Síðast þegar hann var bundinn við hjólastól var hann svo slappur að hann gat illa rúllað sér á milli staða. Nú ræðst hann á alla gangstéttarkanta, snýst í hringi á ógnarhraða og prjónar inn á milli, bara svona af því að það er svo skemmtilegt.
Það er óhætt að segja að söfnunin fór langt fram úr okkar björtustu vonum og þökkum við öllum innilega fyrir að hafa styrkt bæði verkefnið okkar og félagið. Þeir sem styrktu söfnunina voru í svo miklum meirihluta einstaklingar og þetta hefur sýnt okkur svart á hvítu að margt smátt gerir eitt stórt. Einn einstaklingur styrkti söfnunina um 144.000 krónur, nokkrir einstaklingar um 20.000-100.000 krónur en langflestir styrkirnir voru 1.000-10.000 krónur frá einstaklingum. Nú hefur símanúmerunum verið lokað en enn er opið fyrir styrki með millifærslum og greiðslukortum, eða til mánaðarmóta júlí/ágúst.
Okkur langar til að tilgreina þau fyrirtæki sem hafa styrkt söfnuna um 25.000 krónur eða meira, eins langar okkur til að nefna öll þau sveitarfélög, starfsmannafélög og félagasamtök sem hafa styrkt söfnunina.
SveitarfélögHúnaþing vestra - 150.000 kr.
Mosfellsbær - 100.000 kr.
Akureyrarkaupstaður - 50.000 kr.
Seltjarnarneskaupstaður - 50.000 kr.
FégagasamtökÍslenska landsliðið (U21) - 300.000 kr.
Krabbameinsfélag Akraness og nágrennis - 75.000 kr.
Kiwanisklúbburinn Höfði - 50.000 kr.
Kvenfélag Kjósarhrepps - 30.000 kr.
Húddarafélagið - 20.000 kr.
Ungmennadeild blóðgjafafélag Íslands - 10.000 kr.
StarfsmannafélögSlökkvilið höfuðborgarsvæðisins - 450.000 kr.
365, starfsmenn - 50.000 kr.
Loðvinnsla - 50.000 kr.
S.T.Í.M.Í.S - 50.000 kr.
Volare dekurkonur - 30.000 kr.
Starfsfólk Hrafnistu í Hafnarfirði - 31.000 kr.
Geislabaugur, leikskóli - 30.000 kr.
Sólhlíð, leikskóli - 10.000 kr.
Starfsfólk Hrafnistu í Reykjavík - 5.500 kr.
Fyrirtæki H. Jacobsen ehf - 400.000 kr.
Actavis hf - 300.000 kr.
Lagastoð lögfræðiþjónusta - 250.000 kr.
Sölufélag garðyrkjumanna - 150.000 kr.
Vátryggingafélga Íslands hf - 150.000 kr.
Okkar, líftryggingar - 100.000 kr.
Skipti hf - 100.000 kr.
Vörður, tryggingar hf - 69.000 kr.
Vélaval ehf - 50.000 kr.
Viti ehf - 50.000 kr.
Fulltingi ehf - 40.000 kr.
Sérefni ehf - 40.000 kr.
Tryco ehf - 35.000 kr.
Góðir menn ehf - 30.000 kr.
Ferðaþjónusta bænda hf - 25.000 kr.
Gunnarsstofnun - 25.000 kr.
Landsbankinn Hvammstanga - 25.000 kr.
Málning hf - 25.000 kr.
Oreon ehf - 25.000 kr.
Polarn O. Pyret - 25.000 kr.