05.07.2011
Þeir sem styrktu söfnunina voru í svo miklum meirihluta einstaklingar og þetta hefur sýnt okkur svart á hvítu að margt smátt gerir eitt stórt. Okkur langar til að tilgreina þau fyrirtæki sem hafa styrkt söfnuna um 25.000 krónur eða meira, eins langar okkur til að nefna öll þau sveitarfélög, starfsmannafélög og félagasamtök sem hafa styrkt söfnunina.
18.06.2011
Við höfum svo sannarlega komist að því hvað það er mikið til að góðu fólki. Takk fyrir okkur kæru öll sem styrktuð söfnunina, verkefnið og veittu okkur hlaupurunum andlegan stuðning.
16.06.2011
Af því að það er ekkert betra í lífinu en skilyrðislaus ást.
15.06.2011
Það er búið að vera yndislegt að fá tækifæri til að hlaupa fyrir hetjurnar okkar og ekki ósjaldan sem barátta þeirra hefur verið okkur hvatning og þá sérstaklega í erfiðum aðstæðum.
15.06.2011
Aftur voru það frekar þreyttir hlauparar sem fóru á fætur í morgun. Hnéð á Mágkonunni er farið að rífa sig, kálfinn á Klettinum er eitthvað óstýrilátur og hásinin á Mömmunni er söm við sig. Hlaupararnir hafa fengið mikla og góða fylgd í dag frá mörgum góðum ofurhlaupurum Vesturlands.
14.06.2011
Á Bifröst býr hlýtt og hjartastórt fólk sem var boðið og búið að dekra við okkur að öllu leiti í dag. Við vorum aðeins of fljót á okkur inn í þetta fallega háskólasamfélag þannig að þeir sem höfðu áætlað að hlaupa með okkur misstu af æfingu dagsins.
14.06.2011
Það voru þreyttir hlauparar sem fóru á fætur í morgun á Laugarbakka. Áreynsla síðustu daga er aðeins farin að segja til sín. Líkamar okkar hafa undanfarna daga suðað í okkur eins og seinþreytt börn í sælgætisverslun.
13.06.2011
Miðað við stærð bæjarfélagsins vorum við gáttuð á hversu margir hlupu með okkur að gatnamótunum að Hvammstanga. Þar fengum við líka dýrindis gjafir og auk þess styrkti sveitafélagið söfnunina um 150.000 krónur.
13.06.2011
Ljósmyndarinn Jóhann Smári Karlsson var svo rausnarlegur að gefa okkur mynd til að selja til hæstbjóðanda. Söluverð rennur að sjálfsögðu beint í söfnunina.
13.06.2011
Hetja dagsins er ein mesta krúttsprengja Íslands. Ólafur Þór er alltaf brosandi og sæll á sama tíma og hann hefur mikið jafnaðargeð. Hann hafði lokið meðferð þegar Krumminn okkar greindist en pabbi hans var að vinna með Mömmunni og sýndi hann og kona hans Mömmunni og Klettinum mikinn stuðning.
12.06.2011
Þetta var einn af þeim dögum sem að við vorum búin að kvíða fyrir. Áttum von á því að Öxnadalsheiðin yrði erfið yfirferðar og að umferðin yrði okkur til ama. Dagurinn gekk vonum framar og kláruðum við dagleiðina á 11 kílómetra meðalhraða.
12.06.2011
Pabbi hetju dagsins hitti okkur á Hótel Eddu og hóf hlaupið með okkur. Það er skemmst frá því að segja að hann kom bæði sjálfum sér og okkur á óvart með hlaupi sínu, en hann hljóp hálft maraþon og var undir tveimur tímum að því, hafandi lengst farið 12,6 kílómetra áður.
11.06.2011
Þessi dagur virtist eitthvað svo óskaplega stuttur í samanburði við gærdaginn, enda töluverður munur fyrir hópinn að hlaupa 70 kílómetra en 117 kílómetra. Það var líka alveg frábært að finna fyrir stuðningi Akureyringa og eru þeir greinilega í mjög góðu hlaupaformi.
11.06.2011
Þegar 36 kílómetrar voru til Akureyrar mættu fyrstu meðhlaupararnir og svo bættust enn fleiri í hópinn þegar 30 kílómetrar voru eftir. Líkamstræktarstöðin Bjarg sá um að skipuleggja meðhlaupið í dag og Höldur sá um að keyra meðhlauparana til okkar.
10.06.2011
Við ákváðum að hlaupa lengra í dag en fyrirfram skipulögð dagleið sagði til um til þess að stytta daginn á morgun svo að við getum átt meiri möguleika á lengri tíma með börnum okkar á Akureyri. Við hlupum því 117 kílómetra í dag og eigum þá aðeins 70 kílómetra dagleið á morgun.
10.06.2011
Foreldrar krabbameinsveikra barna eiga það til að kynnast og þekkjast betur en börnin sín á milli. Það er mikið til vegna þess að þegar börnin eru í innlöggnum og oft í einangrun hittast foreldrarnir á göngunum og ræða saman um hvernig ástandið sé. Það er því óhætt að segja að hjörtu ansi margra foreldra veikra barna slái sama taktinn.
09.06.2011
Úti var snjóbylur og mikill mótvindur, enn og aftur. Við Klettinum blasti brekkan, sem í fyrstu virtist óendanleg. Kletturinn er, ólíkt Mömmunni, ekki mikið að flíka tilfinningum sínum og er töluvert jarðbundnari en fiðrildið sem hann er giftur.
09.06.2011
Mamman hefur fyrir löngu sætt sig við að vera veikasti hlekkurinn í hópnum en átt erfitt með að sætta sig við að vera nú orðinn vanvirkur hlekkur. En nú er bara að kyngja aumingjaskapnum og sjálfsvorkuninni, taka sér hvíld og vera þakklát fyrir að eiga svona góða að sem ekki bara geta létt undir með manni heldur vilja það líka.
08.06.2011
Mamman og hásinin hafa átt í baráttu síðustu daga. Mamman hefur undanfarið unnið þessa baráttu og einhvern vegin dröslað sér í gegnum sársaukann. Nú er þó svo komið að Mamman varð undir og hásinin vann.
08.06.2011
Við höfum frá upphafi gert okkur grein fyrir að þetta yrði ein erfiðasta dagleiðin en jafnframt krefjandi og skemmtileg leið. Við erum búin að vera með fimmta manninn í dag, Rúnar frá RÚV, og náði hann að festa á filmu þegar Öxi var sigruð.
07.06.2011
Við skáluðum svo við sveitastjórann í krækiberjasaft, fengum gjafir frá sveitarfélaginu og hlupum svo með íbúum bæjarins að hótelinu. Eftir hópmyndatöku var okkur boðið í sund og var dásamlegt að komast heitan heita pott.
07.06.2011
Það er eitthvað háflkjánalegt að tala um hetju dagsins í bloggfærslu. Það er ekki með nokkru móti hægt að koma með lýsingarorð yfir hetjuskap hans Franks.
06.06.2011
Hlaupararnir eru þónokkuð þrekaðir eftir rok dagsins. Við börðumst í 15-25 metrum á sekúndu í allan dag með rokið bókstaflega í fanginu. Við skiptumst á að slást við rokið annars vegar og að hlaupa í skjóli bílsins hins vegar, báðir kostirnir voru þó tvímælalaust erfiðir.
06.06.2011
Við vissum að þessi dagur gæti orðið okkur erfiður. Veðurspáin hafði undirbúið okkur fyrir það.
05.06.2011
Getur verið að ég finni svona á mér bara á því að drekka malt. Mágkonan lyfti upp dósinni sem varla hafði verið snert og sagði; Nei, það er ekki mögulegt. Skrítið; sagði Mamman þvoglumælt. Mér líður eins og ég sé drukkin. Mamman sem nær aldrei snertir áfengi og er algjör hænuhaus.
05.06.2011
Við tókum þann pól í hæðina í morgun að gera bara eins og Georg. Ráðast bara í verkefnið og láta ekkert á okkur fá. Georg er einstakur harðjaxl.
04.06.2011
Þegar Mamman hafði kysst börnin sín í klessu fór hún inn í húsbílinn, lagðist upp í rúm og reyndi að einbeita sér að því að tæma hugann og horfa upp í hvítt þakið.
04.06.2011
Elsku Lea Karen við erum svo ánægð að þekkja þig og þína. Til hamingju með daginn fallega stelpa, þetta er dagurinn þinn.
03.06.2011
Í gær hlupum við og sífellt bættust meðhlauparar í hópinn á sama tíma og aðrir duttu út. Í dag hlupum við í fallegri náttúrunni okkar og fylgdarliðið var skipað kríum, tjöldum, hestum og nokkrum kindum.
03.06.2011
Elsku fallegi Gunnar, dagurinn í dag er dagurinn þinn, til hamingju með hann.
-
02.06.2011
-
02.06.2011
-
02.06.2011
-
30.05.2011
-
27.05.2011
-
25.05.2011
-
22.05.2011
-
20.05.2011
-
20.05.2011
-
16.05.2011