Mamman
 
Signý Gunnarsdóttir er móðir Krumma. Hún er jafnframt ritari hópsins og sér um skrifin á heimasíðunni. Hún er íslenskufræðingur að mennt og var síðast við störf hjá Morgunblaðinu. Vegna veikinda Krumma hefur hún þó ekki getað sinnt vinnu í eitt og hálft ár. Signý á ekki neinn hlaupaferil að baki og hafði mest hlaupið 10 kílómetra þegar ákvörðunin um að hlaupa hringinn var tekin. Æfingarnar í vetur hafa gengið heldur brösulega hjá henni sökum eymsla í mjöðm, verks í hné og berkjubólgu. Hún ætlar sér þó að fara þetta á þrjóskunni og kippir sér ekki upp við það að hún hlaupi á hraða snigilsins.
 
Kletturinn
 
Sveinn Benedikt Rögnvaldsson er faðir Krumma.  Hann starfar sem dagskrárgerðamaður hjá Stöð 2 sport og því tilhlýðilegt að hann sjái um myndbandagerð á meðan á ferðinni stendur. Það er gaman að segja frá því að eina langhlaupið sem Sveinn hefur keppt í er ofurmaraþon, en hann hljóp Laugaveginn árið 2007. Hann vill meina að hann hafi ekki verið í góðu formi á þeim tíma og farið þetta yfir, krampandi á þvermóðskunni, en það sýnir kannski einna best viljastyrk Sveins. Að því hlaupi frátöldu þá er þetta í fyrsta sinn sem Sveinn hefur æft fyrir langhlaup.
 
Mágkonan
 
Alma María Rögnvaldsdóttir er föðursystir Krumma. Hún mun hlúa að hlaupurunum á leiðinni, þar á meðal sjálfri sér, en hún er menntaður hjúkrunarfræðingur og vinnur hjá Heilsugæslunni Firði í Hafnafirði. Það er dæmi um sjálfhverfu ritarans að kalla Ölmu Maríu mágkonuna en hún, ofurmaraþonhlauparinn, gæti vissulega borið öllu öflugari gælunafn. Hún er mikill hlaupari og hljóp nú nýlega maraþon í Rotterdam á tímanum 3:16, en það er tími sem allir geta verið stoltir af.
 
Maraþonmaðurinn
 
Guðmundur Guðnason er eiginmaður mágkonunnar. Vegna tölvunarfræðimenntunar sinnar og starfs er nærtækt að hann sjái um netsamskipti hópsins og allt er viðkemur tölvumálunum, með dyggri aðstoð TM Software. Guðmundur er ekki síður mikill hlaupari en eiginkona hans en hann á þónokkur maraþon að baki og er besti tími hans 2:58. Guðmundur lætur sér ekki nægja að hlaupa maraþon hann er líka ofurmaraþonhlaupari. Öfugt við mömmuna sem hleypur á hraða snigilsins má vart sjá hvar Guðmundur fer yfir, svo hratt hleypur hann.
 
 
Ungarnir okkar
 
Krumminn
 
Upphafið að þessari hugmynd okkar á rætur sínar að rekja til veikinda Gunnars Hrafns Sveinssonar en hann greindist með bráðahvítblæði í janúar 2010. Gunnar Hrafn verður fimm ára í júlí og hlakkar mikið til. Hann er óvenjuskýr leikskólastrákur sem stefnir að því að geta hjólað án hjálpardekkja í sumar. Eftir allt sem Gunnar Hrafn hefur gengið í gegnum hefur það ekki farið fram hjá nokkrum manni sem umgengst hann að samkennd hans með öðrum er með eindæmum mikil og eitthvað sem ekki er algengt að sjá hjá svo ungum börnum.
 
Litla leikkonan
 
Regína Sjöfn Sveinsdóttir er 8 ára systir Krumma. Hún hefur liðið fyrir það síðastliðið eitt og hálft ár að vera systir veika barnsins og því allt of oft verið í öðru sæti. Regína Sjöfn var lengst af með viðurnefnið Músin en sökum aldurs þykir henni það ekki viðeigandi lengur. Litla leikkonan varð sjálfgefið því að hún veit fátt skemmtilegra en að stíga á svið og leika og syngja. Ef hún er ekki á leiklistarnámskeiðum fer hún inn í herbergi með bróður sínum og semur leikrit með honum.
 
Sæti hlaupastrákurinn
 
Marteinn Guðmundsson verður þrettán ára í haust. Krummi lítur mikið upp til þessa stóra frænda síns sem hefur alveg einstaka nærveru. Marteinn æfir körfubolta af miklum móð en hann er ekki síður fær á píanóið. Marteinn stefnir á að feta í fótspor foreldra sinna hvað varðar hlaupin og á hann nú þegar, þrátt fyrir ungan aldur, með eindæmum góða tíma í styttri vegalengdum. Marteinn hljóp nýlega 5km á 23:27 og 10km á 53:14 sem verður að teljast ansi gott fyrir 12 ára strák.
 
Ungfrú fegurð
 
Katrín Guðmundsdóttir er átta ára körfuboltastelpa. Krummi veit fátt skemmtilegra en að fá hana  í heimsókn og að fá að leika með tveimur frænkum á snemmbúnu gelgjuskeiðinu, þá er leikritagerð og sýningar í sérstöku uppáhaldi. Líkt og hjá flestum í þessari fjölskyldu er tónlistaráhugi Katrínar mikill og lærir hún á klarinett auk þess sem hún syngur eins og engill.